LAGASKJÖL OG SKILMÁLAR – SMARTHOUSE.IS
Síðast uppfært: 3. febrúar 2026
Þetta skjal inniheldur alla skilmála og lögfræðilegar upplýsingar sem gilda um viðskipti við heela.is, þar á meðal almenna skilmála, ábyrgðarreglur, skila- og endurgreiðslustefnu, persónuverndarstefnu og upplýsingar um rekstraraðila (imprint).
Skjal þetta er til upplýsinga og getur tekið breytingum. Með því að nota vefsíðuna eða kaupa vörur af heela.is samþykkir þú neðangreinda skilmála.
I. ALMENNIR SKILMÁLAR
1. Inngangur Þessir skilmálar gilda um öll kaup og alla notkun á vefsíðunni heela.is. Með því að nota vefsíðuna eða kaupa vörur staðfestir kaupandi samþykki sitt á þessum skilmálum.
2. Notkun vefsíðunnar Kaupandi verður að vera að minnsta kosti 18 ára til að leggja inn pöntun. Allar upplýsingar sem gefnar eru upp verða að vera réttar. Vefsíðuna má ekki nota í ólöglegum tilgangi.
3. Vörur heela.is selur rafknúin ökutæki og tengdar vörur. Lýsingar og myndir á vefsíðu eru til leiðbeiningar. Endanleg vara getur innihaldið minniháttar frávik vegna framleiðsluferla eða tæknilegra breytinga (t.d. litbrigði eða minniháttar málfrávik). Slík frávik hafa engin áhrif á gæði, virkni eða samþykktar tæknikröfur.
4. Verðlagning og greiðsla Verð eru skráð í íslenskum krónum (ISK) með virðisaukaskatti nema annað sé tekið fram. Verð geta breyst þar til pöntun hefur verið staðfest. Greiðsla skal fara fram með samþykktum greiðslumáta. Pöntunum má hafna ef rökstuddur grunur leikur á svikum.
5. Pantanir Pantanir teljast staðfestar við útgáfu skriflegrar staðfestingar frá heela.is. Sérsmíðaðar vörur krefjast samþykkis kaupanda á hönnun/teikningum. Breytingar eftir að hönnun hefur verið samþykkt geta leitt til viðbótarkostnaðar og tafa.
6. Afhending Afhendingartímar eru áætlaðir og byggjast á framleiðslu- og flutningaáætlun þess tíma. Tímasetningar geta breyst vegna óviðráðanlegra þátta (Force Majeure), svo sem veðurs, tafa í alþjóðaflutningum eða aðgengis að afhendingarstað. heela.is mun tilkynna tafir um leið og þær liggja fyrir.
7. Afpantanir Staðlaðar vörur má afpanta samkvæmt íslenskum lögum áður en afhending fer fram. Sérsmíðaðar pantanir má ekki afpanta eftir að framleiðsla er hafin án kostnaðar. Sjá nánar í kaflanum Endurgreiðslu- og skilastefna.
8. Ábyrgð og kvörtunarréttur
- Neytendur: Vörur seldar neytendum njóta lögbundins kvörtunarréttar í 2 ár samkvæmt lögum um neytendakaup.
- Lögaðilar: Fyrir sölu til lögaðila (fyrirtækja) gildir 1 árs ábyrgð vegna galla, nema um annað sé samið.
9. Skaðabótaábyrgð heela.is ber ekki ábyrgð á óbeinu tjóni, rekstrartapi eða afleiddu tjóni. Hámarksábyrgð takmarkast við kaupverð vörunnar.
10. Lögsaga Þessir skilmálar falla undir íslensk lög. Rísi ágreiningur skal hann rekinn fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.
11. Samskipti
- Tölvupóstur: [email protected]
- Vefsíða: heela.is
II. ÁBYRGÐARYFIRLÝSING
1. Lögbundin ábyrgð Vörur seldar neytendum njóta 2ja ára kvörtunarréttar vegna galla í samræmi við lög um neytendakaup. Fyrir vörur seldar til lögaðila (fyrirtækja) í atvinnurekstri gildir 1 árs ábyrgð, nema annað sé tekið fram í samningi. Ábyrgðin nær til galla í efni, burðarvirki og framleiðslu sem voru til staðar við afhendingu.
Miðað við eðli galla getur kaupandi átt rétt á:
- Viðgerð,
- Nýrri vöru,
- Afslætti, eða
- Endurgreiðslu (ef galli er verulegur).
2. Undantekningar Ábyrgðin fellur niður í eftirfarandi tilvikum:
- Vörunni hefur verið breytt af kaupanda.
- Um eðlilegt slit er að ræða.
3. Ábyrgð kaupanda Kaupendur verða að sinna viðhaldi á ökutækjum og tilkynna galla tafarlaust.
4. Kröfur um ábyrgð Sendið tölvupóst á [email protected]. Látið fylgja pöntunarnúmer, nákvæma lýsingu á gallanum og myndir eða myndband þar sem það á við. heela.is mun svara erindinu innan 14 daga.
III. ENDURGREIÐSLU- OG SKILASTEFNA
Réttur til skila og endurgreiðslu ræðst af eðli vörunnar (stöðluð eða sérsmíðuð) og hvernig kaupin fara fram (vefverslun eða skoðun á staðnum).
1. Staðlaðar vörur (Lager)
- Netkaup (Fjarsala): Ef vara er keypt og fullgreitt í gegnum vefverslun án þess að kaupandi hafi skoðað vöruna, gildir lögbundinn 14 daga réttur til að falla frá kaupum frá afhendingardegi.
- Kaupandi ber ábyrgð á og greiðir allan flutningskostnað við skil á vörunni til seljanda.
- Kaup með skoðun (Staðbundin sala): Ef kaupandi gengur frá lokagreiðslu/samningi eftir að hafa skoðað vöruna á starfsstöð heela.is, teljast kaupin hafa farið fram á staðnum. Í þeim tilvikum gildir enginn skilaréttur eftir að gengið hefur verið frá kaupum, nema um galla sé að ræða.
2. Sérpantanir
- Enginn skilaréttur eða afpöntunarréttur er á vörum sem eru sérpantaðar eða breyttar samkvæmt óskum kaupanda.
- Staðfestingargjald: Staðfestingargjald fyrir sérpantanir er óafturkræft (fæst ekki endurgreitt) eftir að hönnun hefur verið samþykkt eða framleiðsla hafin, þar sem varan hefur þá verið sniðin að þörfum kaupanda og er ekki seljanleg öðrum.
3. Kaup í atvinnurekstri (Fyrirtæki) Lögbundinn 14 daga skilaréttur gildir ekki um vörur sem seldar eru til lögaðila (fyrirtækja/verktaka) í atvinnurekstri. Sala til fyrirtækja er endanleg við staðfestingu pöntunar, nema annað sé sérstaklega tekið fram í skriflegum samningi.
4. Skilyrði fyrir skilum Ef skilaréttur er til staðar (sbr. lið 1 um netkaup) verður vara að vera:
- Ónotuð og í upprunalegu ástandi.
- Óskemmd og hrein.
- heela.is áskilur sér rétt til að draga frá endurgreiðslu ef rýrnun hefur orðið á verðmæti vöru vegna meðferðar kaupanda.
5. Gallaðar vörur Allar vörur, óháð kaupmáta, falla undir lög um neytendakaup (eða lausafjárkaup fyrir fyrirtæki) vegna galla. Sjá nánar í kaflanum Ábyrgðaryfirlýsing.
Beiðnir um endurgreiðslu: Sendið pöntunarnúmer, ástæðu og myndir (ef við á) á [email protected].
IV. PERSÓNUVERNDARSTEFNA
1. Söfnun gagna heela.is safnar eftirfarandi upplýsingum til að geta veitt umbeðna þjónustu:
- Persónuupplýsingar: Nafn, netfang, símanúmer og heimilisfang.
- Viðskiptaupplýsingar: Upplýsingar um pantanir, vöruval, greiðslu- og reikningsupplýsingar.
- Tæknilegar upplýsingar: Gögn um notkun á vefsíðu, IP-tölur, tegund vafra og tækja, sem og upplýsingar safnað með vefkökum (cookies) og sambærilegri tækni (pixels).
2. Notkun gagna Gögn eru notuð í eftirfarandi tilgangi:
- Afgreiðsla pantana og vöruafhending.
- Þjónusta við kaupendur og meðferð ábyrgðarmála.
- Úrbætur á vefsíðu og notendaupplifun byggðar á tölfræðigreiningu.
- Markaðssetning: Sending fréttabréfa (með samþykki) og birting sérsniðinna auglýsinga á samfélagsmiðlum og leitarvélum (Google, LinkedIn, Facebook) byggt á hegðun notenda á vefnum.
3. Lagastoð Vinnsla persónuupplýsinga byggir á:
- Samningi: Til að klára kaup og afhenda vöru.
- Lagaskyldu: T.d. varðveisla bókhaldsgagna samkvæmt lögum.
- Samþykki: Fyrir markaðspóst og notkun á valkvæðum vefkökum (markaðs- og greiningarkökum).
- Lögmætum hagsmunum: Til að tryggja öryggi vefsíðunnar og verjast svikum.
4. Geymsla og miðlun gagna SmartHouse.is geymir gögn á öruggan hátt. Full greiðslukortanúmer eru aldrei geymd í kerfum okkar. Við deilum gögnum með nauðsynlegum vinnsluaðilum, s.s.:
- Greiðslumiðlum (til að klára pöntun).
- Samstarfsaðilum um uppsetningu (ef við á).
- Þjónustuaðilum í vefgreiningu og markaðssetningu: Svo sem Google, LinkedIn og Meta.
Gögn eru að meginreglu geymd innan EES. Þar sem þjónustuaðilar (t.d. Google/LinkedIn) eru staðsettir utan EES (t.d. í Bandaríkjunum) er flutningur gagna tryggður á grundvelli lögmætra flutningsheimilda, svo sem staðlaðra samningsskilmála (SCC) eða Data Privacy Framework samkomulagsins. Gögn eru aldrei seld til þriðja aðila.
5. Vefkökur (Cookies) og vefmælingar Vefsíðan notar vefkökur til að tryggja virkni síðunnar. Með samþykki notanda notum við einnig lausnir frá þriðja aðila (t.d. Google Analytics og LinkedIn Insight Tag) til að greina umferð og mæla árangur auglýsinga. Þetta gerir okkur kleift að sníða efni og auglýsingar að áhugasviði notanda á öðrum vefmiðlum. Notendur geta hvenær sem er breytt stillingum sínum fyrir vefkökur á síðunni eða í vafra sínum.
6. Réttindi samkvæmt GDPR Notendur eiga rétt á aðgangi að gögnum sínum, leiðréttingu, eyðingu, takmörkun vinnslu, gagnaflutningi og afturköllun samþykkis.
- Fyrirspurnir skal senda á: [email protected]
- Ef notandi telur brotið á rétti sínum má beina kvörtun til Persónuverndar.
V. UPPLÝSINGAR UM REKSTRARAÐILA (IMPRINT)
- Rekstraraðili: heela.is / akureyri scooters ehf.
- Heimilisfang: Ferjuvað 1, 110 Reykjavík
- Netfang: [email protected]
- Vefsíða: heela.is
- Kennitala: 701224-1080
- VSK-númer: 155493
Eftirlitsaðili: Neytendastofa (neytendastofa.is)
