Persónuverndarstefna

1. Söfnun gagna heela.is safnar eftirfarandi upplýsingum til að geta veitt umbeðna þjónustu:

  • Persónuupplýsingar: Nafn, netfang, símanúmer og heimilisfang.
  • Viðskiptaupplýsingar: Upplýsingar um pantanir, vöruval, greiðslu- og reikningsupplýsingar.
  • Tæknilegar upplýsingar: Gögn um notkun á vefsíðu, IP-tölur, tegund vafra og tækja, sem og upplýsingar safnað með vefkökum (cookies) og sambærilegri tækni (pixels).

2. Notkun gagna Gögn eru notuð í eftirfarandi tilgangi:

  • Afgreiðsla pantana og vöruafhending.
  • Þjónusta við kaupendur og meðferð ábyrgðarmála.
  • Úrbætur á vefsíðu og notendaupplifun byggðar á tölfræðigreiningu.
  • Markaðssetning: Sending fréttabréfa (með samþykki) og birting sérsniðinna auglýsinga á samfélagsmiðlum og leitarvélum (Google, LinkedIn, Facebook) byggt á hegðun notenda á vefnum.

3. Lagastoð Vinnsla persónuupplýsinga byggir á:

  • Samningi: Til að klára kaup og afhenda vöru.
  • Lagaskyldu: T.d. varðveisla bókhaldsgagna samkvæmt lögum.
  • Samþykki: Fyrir markaðspóst og notkun á valkvæðum vefkökum (markaðs- og greiningarkökum).
  • Lögmætum hagsmunum: Til að tryggja öryggi vefsíðunnar og verjast svikum.

4. Geymsla og miðlun gagna SmartHouse.is geymir gögn á öruggan hátt. Full greiðslukortanúmer eru aldrei geymd í kerfum okkar. Við deilum gögnum með nauðsynlegum vinnsluaðilum, s.s.:

  • Greiðslumiðlum (til að klára pöntun).
  • Samstarfsaðilum um uppsetningu (ef við á).
  • Þjónustuaðilum í vefgreiningu og markaðssetningu: Svo sem Google, LinkedIn og Meta.

Gögn eru að meginreglu geymd innan EES. Þar sem þjónustuaðilar (t.d. Google/LinkedIn) eru staðsettir utan EES (t.d. í Bandaríkjunum) er flutningur gagna tryggður á grundvelli lögmætra flutningsheimilda, svo sem staðlaðra samningsskilmála (SCC) eða Data Privacy Framework samkomulagsins. Gögn eru aldrei seld til þriðja aðila.

5. Vefkökur (Cookies) og vefmælingar Vefsíðan notar vefkökur til að tryggja virkni síðunnar. Með samþykki notanda notum við einnig lausnir frá þriðja aðila (t.d. Google Analytics og LinkedIn Insight Tag) til að greina umferð og mæla árangur auglýsinga. Þetta gerir okkur kleift að sníða efni og auglýsingar að áhugasviði notanda á öðrum vefmiðlum. Notendur geta hvenær sem er breytt stillingum sínum fyrir vefkökur á síðunni eða í vafra sínum.

6. Réttindi samkvæmt GDPR Notendur eiga rétt á aðgangi að gögnum sínum, leiðréttingu, eyðingu, takmörkun vinnslu, gagnaflutningi og afturköllun samþykkis.

  • Fyrirspurnir skal senda á: [email protected]
  • Ef notandi telur brotið á rétti sínum má beina kvörtun til Persónuverndar.